Vitanova

Einfaldar lausnir sem bæta lífsgæði

Kynnum Droplet – snjallt drykkjarmál sem áminnir þig um að drekka.

Af hverju velja vitanova?

Vörurnar okkar eru valdar með áherslu á notendavænleika, hágæða hönnun og meðvitaða nálgun að þörfum hvers einstaklings.

Traust fagþekking

Hágæða og öruggar lausnir

Notandinn í fyrsta sæti

Okkar fyrsta vara

Droplet

Við kynnum okkar fyrstu vöru sem er Droplet – ný gerð drykkjarmáls sem einfaldar daglegt líf og styður við heilbrigði og sjálfstæði. Droplet er snjöll lausn sem hvetur notandann til reglulegrar vökvainntöku með hljóð- og ljósáminningu, án þess að trufla daglega rútínu. Það er sérstaklega hannað fyrir fólk sem þarf áminningu yfir daginn, til dæmis eldra fólk, fólk með minnisskerðingu eða þá sem glíma við langvinn veikindi.

Markmið okkar er að gera lífið öruggara, þægilegra og sjálfstæðara – fyrir alla.

Contact us

Snjallbotninn tengist bollanum eða glasi og mælir vökvainntöku. Ef dregur úr neyslu gefur hann frá sér ljós- og hljóðáminningu. Droplet var þróað í samvinnu við heilbrigðisstarfsfólk og er sérsniðið að þörfum einstaklinga með minnisskerðingu, hreyfihömlun eða langvinna sjúkdóma.

  • Snjallbotn með áminningu og næturljósi.
  • Bolli/glasi með mælinálum (100 ml) til að fylgjast með neyslu.
  • Flæðilok fyrir þá með kyngingarerfiðleika.
  • Öruggt grip og létt hönnun – auðvelt í notkun á heimilum og í stofnanaumhverfi.

Hvernig virkar Droplet?

Einfaldar lausnir. Stór áhrif.

Fyrir hverja er Droplet?

Eldra fólk

Hjálpar til við að viðhalda reglulegri vökvainntöku. Margir eldri einstaklingar drekka minna en þeir þurfa. Droplet minnir á að drekka yfir daginn og styður við sjálfstæði og vellíðan.

Fólk með minnisskerðingu eða langvinna veikindi

Ein einföld lausn sem auðveldar daglegt líf. Droplet gefur ljós- og hljóðáminningar þegar kominn er tími til að drekka – án þess að trufla rútínu eða þurfa flókin tæki.

Áreiðanlegt hjálpartæki í umönnun. Droplet auðveldar fagfólki að fylgjast með vökvainntöku og tryggir að skjólstæðingar haldist vel vökvaðir yfir daginn.

Heimahjúkrun og heilbrigðisþjónusta